Fotbolti.net
31.08.08 - 19:50
Magnús Már Einarsson

Eiður Smári Guðjohnsen til Monaco (Staðfest)

Eiður Smári Guðjohnsen til Monaco (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Eiður Smári Guðjohnsen hefur skrifað undir 2 ára samning við AS Monaco en hann stóðst læknisskoðun hjá félaginu fyrr í dag. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.
Eiður kemur til Monaco eftir þriggja ára dvöl hjá Spánar og Evrópumeisturum Barcelona.

Á ferli sínum í atvinnumennskunni hefur Eiður leikið með PSV Eindhoven, Bolton Wanderers, Chelsea og síðast Barcelona.

Eiður skoraði tíu mörk í 72 deildarleikjum með Börsungum en á síðustu leiktíð skoraði hann þrjú mörk fyrir liðið.

Monaco endaði í ellefta sæti í frönsku deildinni á síðustu leiktíð. Núna er liðið í tólfta sæti með sex stig þegar að fjórar umferðir eru búnar í frönsku deildinni.

Næsti leikur Monaco í frönsku deildinni er síðan á heimavelli gegn Paris Saint-Germain þann 12.september og þar mun Eiður væntanlega leika sinn fyrsta leik með félaginu. Hann mun leika í treyju númer 9.

Áður en að því kemur mun Eiður leika með íslenska landsliðinu gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli næstkomandi laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.