Fotbolti.net
31.08.10 - 06:00
Magnús Már Einarsson

David Trezeguet til Hercules (Staðfest)

David Trezeguet til Hercules (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franski framherjinn David Trezeguet hefur ákveðið að gera tveggja ára samning við Hercules á Spáni.
Þessi 32 ára gamli leikmaður losnaði undan samningi hjá Juventus um helgina eftir tíu ára dvöl hjá félaginu.

Trezeguet ákvað að taka tilboði Hercules frá Alicante en eiginkona hans er þaðan.

,,Ég vildi spila á Spáni, ég tel það vera mikilvægt skref á mínum ferli,\" sagði Trezeguet.

Einhverjir íslenskir knattspyrnuáhugamenn ættu að kannast við lið Hercules en Pétur Pétursson, aðstoðarlandsliðsþjálfari og aðstoðarþjálfari KR, lék með liðinu í spænsku úrvalsdeildinni á sínum tíma.

Undanfarin ár hefur Hercules verið í næstefstu deild á Spáni en síðastliðið vor tryggði liðið sér sæti á meðal þeirra bestu á nýjan leik.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.