Fotbolti.net
31.08.10 - 09:10
Þórður Már Sigfússon

Gylfi Þór Sigurðsson til Hoffenheim (Staðfest)

Gylfi Þór Sigurðsson til Hoffenheim (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson er genginn í raðir þýska úrvalsdeildarliðsins Hoffenheim frá Reading en hann hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið. Frá þessu er greint á heimasíðu þýska félagsins.
Forráðamenn Hoffenheim lýsa yfir mikilli ánægju með því að hafa fengið Gylfa til liðsins og sjá í honum leikmann sem á eftir að bæta sig mikið þrátt fyrir að vera orðinn nú þegar mjög frambærilegur leikmaður.

Breiðablik á rétt á 10% af kaupverðinu sem er talið nema um 6 milljónum punda.

Heimild: Heimasíða Hoffenheim

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.