31.08.10 - 09:48
Magnús Már Einarsson
Klaas-Jan Huntelaar til Schalke (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Þýska félagið Schalke hefur keypt framherjann Klaas-Jan Huntelaar frá AC Milan á 10,5 milljónir punda.
,,Það er satt að ég vildi aldrei fara frá AC Milan en það breyttist þegar Zlatan Ibrahimovic kom frá Barcelona,\" sagði Huntelaar.
Þessi 27 ára gamli leikmaður kom til AC Milan frá Real Madrid í fyrra en hann náði aldrei að finna sig á Ítalíu.
Tottenham sýndi Huntelaar áhuga en hann ákvað að velja Schalke þar sem hann hittir fyrir Raul fyrrum liðsfélaga sinn hjá Real Madrid.
,,Viðræðurnar voru erfiðari en ég bjóst við. Ég er ánægður með að fá Klaas-Jan. Hann mun hjálpa okkur,\" sagði Felix Magath þjálfari Schalke.

Heimild: Sky