31.08.10 - 10:11
Magnús Már Einarsson
Marcus Bent til Wolves (Staðfest) - Fjórtánda félagið á ferlinum

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Wolves hefur krækt í framherjann Marcus Bent á láni frá Birmingham en samningurinn gildir þar til í janúar.
Þessi 32 ára gamli leikmaður kemur til með að fylla skarð Andy Keogh hjá Wolves en hann fór til Cardiff á láni.

Bent hatar ekki að fara á láni frá Birmingham en á síðasta tímabili kíkti hann bæði til Middlesbrough og QPR um tíma.
Í gegnum tíðina hefur Bent flakkað mjög mikið á milli félaga og Wolves er núna fjórtánda félagið sem hann leikur með.
Auk Wolves, Birmingham, Middlesbrough og QPR á hefur Bent leikið með Brentford, Crystal Palace, Port Vale, Sheffield United, Blackburn Rovers, Ipswich Town, Leicester City, Everton og Wigan.

Heimild: Sporting Life