31.08.10 - 11:38
Magnús Már Einarsson
Mauro Camoranesi til Stuttgart (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Ítalski miðjumaðurinn Mauro Camoranesi hefur gengið til liðs við Stuttgart frá Juventus.
Þessi 33 ára gamli leikmaður skrifaði undir eins árs samning við Stuttgart en kaupverðið var ekki gefið upp.
Ljóst varð fyrr í sumar að Camoranesi myndi yfirgefa Juventus en hann var lengi orðaður við Birmingham.
Camoranesi samdi hins vegar á endanum við Stuttgart en liðið hefur byrjað illa og situr á botni þýsku Bundesligunnar eftir tvo leiki.

Heimild: AP