Fotbolti.net
31.08.10 - 12:05
Magnús Már Einarsson

Salif Diao aftur til Stoke (Staðfest)

Salif Diao aftur til Stoke (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Senegalski miðjumaðurinn Salif Diao hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning í Stoke.
Diao, sem er 33 ára, yfirgaf Stoke í júní þegar samningur hans við félagið rann út.

Diao hafnaði nýju samningstilboði og í kjölfarið sýndu nokkur félög honum áhuga.

Nú hefur Diao hins vegar gert nýjan tveggja ára samning við Stoke en hann mun einnig verða sendiherra félagsins.

,,Viðræður gengu mjög vel og loksins hef ég náð að samþykkja tveggja ára samning. Ég er mjög ánægður með að vera kominn aftur heim,\" sagði Diao.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.