Fotbolti.net
31.08.10 - 12:34
Alexander Freyr Tamimi

Matt Phillips í Blackpool (Staðfest)

Blackpool komst upp í ensku úrvalsdeildina á seinasta tímabili.

Blackpool komst upp í ensku úrvalsdeildina á seinasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar ensku úrvalsdeildarinnar í Blackpool hafa gengið frá kaupunum á vængmanninum Matt Phillips frá Wycombe Wanderers. Phillips gæti endað á því að kosta liðið 700.000 pund ef félagið fellur ekki úr úrvalsdeildinni í ár.
Phillips er 19 ára gamall og var knattspyrnustjórinn Ian Holloway hæstánægður með að hafa nælt sér í leikmanninn.

„Matty hefur verið undir smásjá okkar í töluverðan tíma. Hann stóð sig vel í Evrópumóti U-19 ára liða með enska landsliðinu í sumar og hann hefur spilað nánast 80 deildarleiki með Wycombe. Þegar þú ert 19 ára gamall er það virkilegt afrek,“ sagði Holloway.

Það verður forvitnilegt að sjá hvort að Phillips muni höndla stökkið frá fjórðu efstu deild Englands yfir í þá bestu, en það mun líkast til koma í ljós í vetur.

Heimild: Vefur Blackpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.