31.08.10 - 14:07
Magnús Már Einarsson
Paul Konchesky til Liverpool (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur gengið frá kaupum á vinstri bakverðinum Paul Konchesky frá Fulham.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en Lauri Dalla Valle og Alex Kacaniklic munu fara til Fulham sem hluti af samningnum.

Konchesky, sem er 29 ára, er búinn að standast læknisskoðun og skrifa undir fjögurra ára samning við Liverpool.
Konchesky kom til Fulham frá West Ham árið 2007 og lék alls 97 leiki með liðinu.
Áður lék Konchesky með bæði Charlton og Tottenham en hann ætti að geta leikið sinn fyrsta leik með Liverpool gegn Birmingham þann 12.september næstkomandi.

Heimild: Heimasíða Liverpool