31.08.10 - 15:54
Alexander Freyr Tamimi
Robinho í AC Milan (Staðfest)

Robinho hefur kvatt Manchester City.

Mynd: Getty Images

Robinho hefur kvatt Manchester City.

Mynd: Getty Images
AC Milan og Manchester City hafa staðfest að brasilíski framherjinn Robinho sé genginn til liðs við þá ítölsku frá þeim síðarnefndu. Robinho hafði engan áhuga á því að vera um kyrrt hjá City og var hann meðal annars á láni hjá Santos í heimalandinu á seinni hluta seinasta tímabils.
Robinho hélt til Mílanóborgar til að gangast undir læknisskoðun í dag og hefur nú verið gengið frá málunum. Á ferli sínum hjá Manchester City skoraði hann 16 mörk og meðal annars mark í sínum fyrsta leik fyrir félagið, gegn Chelsea. Þá skoraði hann einnig þrennu gegn Stoke.
City hafði áður samþykkt tilboð frá Fenerbache í leikmanninn en hann vildi ekki fara til Tyrklands. Hann hefur nú slegist í hóp með Zlatan Ibrahimovic og munu þeir mynda gríðarlega sterkt framherjapar hjá AC Milan.
Þess má til gamans geta að Robinho gekk einmitt til liðs við City á þessum degi árið 2008, og varð hann þá dýrasti leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, en þá var kaupverðið rúmar 30 milljónir punda. Það var hins vegar ekki gefið upp nú.