Fotbolti.net
31.08.10 - 16:25
Hafliði Breiðfjörð

Asamoah Gyan til Sunderland fyrir metfé (Staðfest)

Asamoah Gyan er genginn til liðs við Sunderland. Hér má sjá viðbrögð hans eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu gegn Úrúgvæ sem hefði getað skotið Ghanamönnum í undanúrslit HM í sumar.

Asamoah Gyan er genginn til liðs við Sunderland. Hér má sjá viðbrögð hans eftir að hafa klúðrað vítaspyrnu gegn Úrúgvæ sem hefði getað skotið Ghanamönnum í undanúrslit HM í sumar.

Canon

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Asmoah Gyan fyrir 13 milljónir punda frá Rennes í Frakklandi. Hann er þar með orðinn dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Gyan stóð sig frábærlega með landsliði Ghana á heimsmeistaramótinu í Suður Afríku í sumar og vakti þar verðskuldaða athygli. Eftir langar og strangar samningaviðræður hefur Sunderland nú náð að hreppa þennan eftirsótta leikmann.

Þessi 24 ára framherji stóðst læknisskoðun fyrr í dag áður en hann skrifaði undir fjögurra ára samning á leikvangi ljóssins.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.