Fotbolti.net
31.08.10 - 17:23
Magnús Valur Böðvarsson

Eiður Smári til Stoke City (Staðfest)

Eiður Smári er kominn til Stoke frá Monaco.

Eiður Smári er kominn til Stoke frá Monaco.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Vilhjálmur Siggeirsson

Eiður Smári Guðjohnsen er genginn til liðs við Stoke City en félagaskiptin gengu í gegn áður en félagaskiptaglugginn í Englandi lokaði klukkan 17:00 í dag.
Ferill Eiðs Smára hjá Monaco hefur verið langt frá því að vera farsæll og tekur hann því sjálfsagt fagnandi að vera kominn á nýjan leik í ensku úrvalsdeildina.

Eiður Smári gekk til liðs við Chelsea frá Bolton árið 2000 og átti þar farsælan feril til ársins 2006 þegar hann var keyptur til Barcelona. Eiður Smári vann marga titla með bæði Chelsea og Börsungum áður en hann gekk til liðs við Monaco í Frakklandi eftir að hafa fallið aftar í goggunarröðinni í Katalóníu.

Hjá Monaco gengu hlutirnir ekki sérlega vel hjá Eiði og var hann lánaður til Tottenham á seinni hluta seinasta tímabils þar sem hann átti ágætu gengi að fagna þrátt fyrir að tækifærin hafi ekki verið allt of mörg. Talið var að Tottenham myndi mögulega næla sér í Eið á nýjan leik fyrir þetta tímabil en ekkert varð úr því.

Undanfarna daga hafði Eiður Smári verið sterklega orðaður við bæði Stoke og Fulham en eftir að Stoke birti frétt á heimasíðu sinni um að íslenski landsliðsmaðurinn væri í samningaviðræðum við félagið var ljóst að Stoke on Trent var líklegasti áfangastaður hans. Nú hefur verið gengið frá samningum og mun Eiður því leika í hvítu og rauðu treyjunni út þetta tímabil.

Eiður Smári er ekki í landsliðshóp Íslendinga sem mætir Noregi og Dönum í undankeppni EM á næstu dögum.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.