Fotbolti.net
31.08.10 - 17:22
Magnús Már Einarsson

Ian Harte til Reading (Staðfest)

Ian Harte til Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur krækt í írska vinstri bakvörðinn Ian Harte frá Carlisle en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Harte, sem fagnar 33 ára afmæli sínu í dag, skoraði alls átján mörk fyrir Carlisle á síðustu leiktíð en hann er afar hættulegur í föstum leikatriðum.

Harte sló í gegn með Leeds á sínum tíma en ferill hans hefur ekki náð sömu hæðum undanfarin ár.

Hann er annar varnarmaðurinn sem Reading fær í dag á eftir Zurab Khizanishvili sem kom frá Blackburn.

,,Ég er sáttur með að koma hingað, þetta hefur gerst mjög hratt og ég er spenntur fyrir því að hitta strákana núna þegar ég hef fengið tækifæri að koma hingað,\" sagði Harte.

,,Ég er 33 ára og er enn hungraður. Í hvert skipti sem ég kem inn á völlinn legg ég mig 100 prósent fram.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.