31.08.10 - 17:34
Magnús Már Einarsson
James Hurst til WBA (Staðfest) - Ánægður með dvölina hjá ÍBV

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
West Bromwich Albion náði að kaupa hægri bakvörðinn James Hurst frá Portsmouth áður en félagaskiptaglugginn lokaði í dag.
Hurst skrifaði undir þriggja ára samning við WBA nú síðdegis en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net.
Hurst var í láni hjá ÍBV í sumar þar sem hann lék mjög vel. Hurst lék sinn síðasta leik með Eyjamönnum á sunnudag þegar hann skoraði sigurmarkið í 2-1 sigri á Fylki.

,,Dvölin hjá ÍBV hjálpaði mér klárlega, hún hjálpaði mér að fá reynslu,\" sagði Hurst við Fótbolta.net í dag.
,,Ég vonast til að komast í aðalliðið, ég held ég eigi alla möguleika á því.\"
Hurst var á mála hjá WBA á sínum tíma áður en hann fór til Portsmouth árið 2008.