Fotbolti.net
31.08.10 - 21:03
Alexander Freyr Tamimi

Liverpool selur Plessis til Grikklands (Staðfest)

Damien Plessis í leik gegn Arsenal í deildarbikarnum í fyrra.

Damien Plessis í leik gegn Arsenal í deildarbikarnum í fyrra.

Canon

Mynd: Getty Images

Gríska úrvalsdeildarfélagið Panathinaikos hefur gengið frá kaupunum á Damien Plessis leikmanni Liverpool, en kaupverðið er óuppgefið. Þessi franski miðjumaður heldur til Grikklands eftir að það varð ljóst að hann var ekki inni í framtíðaráformum Roy Hodgson.
Plessis gekk til liðs við Liverpool frá Lyon sumarið 2007 en náði aldrei að brjótast almennilega í aðalliðið. Hann spilaði einungis átta leiki fyrir félagið og skoraði eitt mark.

Heimild: Vefur Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.