Fotbolti.net
31.08.10 - 21:35
Alexander Freyr Tamimi

Teemu Tainio til Ajax (Staðfest)

Tainio spilaði með Tottenham undir stjórn Martin Jol.

Tainio spilaði með Tottenham undir stjórn Martin Jol.

Canon

Mynd: Getty Images

Finnski landsliðsmaðurinn Teemu Tainio er genginn til liðs við Ajax eftir að hafa komist að samkomulagi við Sunderland um að rifta samningi sínum við félagið.
Þessi 30 ára miðjumaður mun hitta fyrir í Amsterdam sinn gamla knattspyrnustjóra hjá Tottenham, Martin Jol, sem fékk hann einmitt til Lundúnarliðsins árið 2005. Jol sagðist vera himinlifandi með að hafa fengið leikmanninn.

„Ég er mjög ánægður með að hafa geta styrkt liðið á seinasta degi félagsskiptagluggans,“ sagði Jol við opinbera heimasíðu Ajax.

„Teemu er náungi sem getur unnið mjög mikilvægt starf á miðjunni. Hann er sigurvegari með frábært hugarfar. Ég starfaði með honum hjá Tottenham og ég hélt áfram að fylgjast með honum.“

„Ég er ánægður að stjórn Sunderland hafi sýnt þennan samstarfsvilja þrátt fyrir að Teemu væri enn á samningi. Það var einungis þess vegna sem við gátum fengið hann til okkar.“

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.