31.08.10 - 21:54
Alexander Freyr Tamimi
Arsenal lánar framherja til Hollands (Staðfest)

Barazite í landsleik með U21 liði Hollands gegn Englandi.

Mynd: Getty Images

Barazite í landsleik með U21 liði Hollands gegn Englandi.

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal hefur leyft framherjanum Nacer Barazite að halda til Vitesse Arnhem á láni út tímabilið. Þessi 20 ára Hollendingur snýr því aftur til heimalandsins, en honum hefur gengið illa að sanna sig fyrir Arsene Wenger.
Barazite er einn fjölmargra ungra leikmanna sem Wenger hefur fengið til Arsenal, en hann kom til Lundúnarliðsins árið 2006 frá NEC Nijmegen, en frá þeim tíma hefur hann einungis spilað þrjá leiki í deildarbikarnum fyrir aðalliðið.
Tímabilið 2008-09 lék Barazite 30 leiki fyrir Derby í ensku Championship deildinni og skoraði hann eitt mark. Á seinasta tímabili meiddist hann síðan á öxl og gat lítið spilað en nú mun hann fá tækifæri til að láta ljós sitt skína í hollensku úrvalsdeildinni.

Heimild: Sky