Fotbolti.net
31.08.10 - 22:24
Alexander Freyr Tamimi

Liverpool lánar El Zhar til Grikklands (Staðfest)

Nabil El Zhar er genginn til liðs við PAOK í Grikklandi á láni.

Nabil El Zhar er genginn til liðs við PAOK í Grikklandi á láni.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur staðfest að Nabil El Zhar er haldinn til gríska liðsins PAOK á láni út tímabilið.
Þessi landsliðsmaður Marokkó hefur enn ekki náð að brjótast almennilega í aðallið Liverpool og sagðist hann vilja komast burt frá félaginu. Hann hefur nú fengið ósk sína uppfyllta og ætti að fá meiri spiltíma í Grikklandi.

El Zhar kom til Liverpool frá St Etienne í Frakklandi árið 2006 og hefur hann spilað 32 leiki fyrir félagið. Liverpool greindi einnig frá því að Hollendingurinn Vincent Weijl hefði gengið til liðs við SD Eibar á Spáni.

Heimild: Vefur Liverpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.