Fotbolti.net
31.10.08 - 12:45
Hafliði Breiðfjörð

Fjóla Dröfn Friðriksdóttir í Hauka (Staðfest)

Fjóla fagnar bikarmeistaratitlinum með KR í lok september.

Fjóla fagnar bikarmeistaratitlinum með KR í lok september.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið Hauka hefur fengið gríðarlegan liðsstyrk því Fjóla Dröfn Friðriksdóttir leikmaður bikarmeistara KR er gengin í raðir félagsins. Skiptin vekja nokkra athygli enda átti Fjóla fast sæti í byrjunarliði KR í Landsbankadeildinni og Haukar leika í 1. deild.
,,Ég hef verið í Haukum áður, ég spilaði þar í þrjú ár, og tapaði úrslitaleik um að koma liðinu upp tvisvar sinnum. Mér finnst bara að ég eigi eftir að klára það dæmi,\" sagði Fjóla í samtali við Fótbolta.net í gærkvöldi.

Haukar hafa ráðið Salih Heimi Porca sem þjálfara og þegar hann tók við starfinu sagði hann við Fótbolta.net að hann ætlaði sér að fá sterka leikmenn úr Landsbankadeildinni í sínar raðir. Fjóla er fyrst þeirra og fleiri eru væntanlegir.

,,Það er verið að tala við fleiri leikmenn úr Landsbankadeildinni og það á að koma liðinu upp. Ég þekki mjög vel til þarna og langaði bara að fá að taka þátt í þessu uppbyggingarstarfi,\" sagði Fjóla.

Fjóla lauk ferli sínum hjá KR með því að vinna bikarúrslitaleikinn á Laugardalsvelli í lok september en yfirgefur nú annað af bestu liðum landsins til að leika í 1. deildinni.

,,Það getur verið að það verði erfitt að fara frá KR því það er margt gott að gerast hjá KR líka. En það hentar mér að gera þetta núna. Þetta er góð ákvörðun fyrir mig,\" sagði Fjóla.

Fjóla Dröfn er í 48 leikmanna hópi Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar í kvennalandsliðinu og á baki tvo leiki með A-landsliðinu, báða á Algarve Cup í Portúgal á síðasta ári. Hún segist ekkert hrædd við að möguleikar hennar á landsliðssæti minnki við að fara í 1. deildina.

,,Nei nei, hann hefur sannað það þjálfarinn að það skiptir engu máli í hvaða liði maður er. Þess vegna skiptir það mig engu máli. Hann myndi örugglega velja leikmenn úr hvaða liði sem er, bara ef þeir eru að standa sig vel. Ég er allavega í 48 manna hópnum hans.\"

Fjóla sem er 27 ára gömul lék alla 18 leiki KR í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim sex mörk á sinni fjórðu leiktíð með félaginu. Hún segir fleiri félög hafa sýnt sér áhuga en valdi Hauka.

,,Það voru fleiri félög sem höfðu samband, þar á meðal tvö úr Landsbankadeildinni en ég valdi að fara til Hauka og er sátt við það,\" sagði Fjóla að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.