31.10.08 - 13:04
Hafliði Breiðfjörð
Mist Edvardsdóttir í KR (Staðfest)

Mist Edvardsdóttir í leik með Aftureldingu í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mist fagnar marki á Fylkisvelli í sumar.

Mist Edvardsdóttir er gengin í raðir bikarmeistara KR frá Aftureldingu. Hún er 18 ára gömul og er fyrsti leikmaðurinn sem gengur í raðir KR eftir að Írinn Gareth O\'Sullivan tók við liðinu eftir að tímabilinu lauk.
,,Þegar ég er að byrja undirbúningstímabilið leyst mér betur á að vera hjá KR,\" sagði Mist í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,KR er frábært félag og vel að öllu staðið hjá þeim. Ekki að það sé ekki hjá Aftureldingu en ég held að þetta sé rétt fyrir mig. Ég skoðaði nokkur félög en KR var alltaf besti kostur.\"
Mist lék áður undir stjórn O\'Sullivan hjá Aftureldingu í Landsbankadeildinni í sumar og í 1. deild í fyrrasumar. ,,Það er þægilegt að hafa einhvern sem maður þekkir hjá félaginu svo það hafði áhrif,\" sagði Mist.
KR varð bikarmeistari í sumar og er annað af tveimur bestu liðum landsins og hefur verið undanfarin ár. En hvernig sér Mist möguleika sína í slíku liði.
,,Það verður erfitt að komast að en það er bara áskorun og ein af ástæðum þess að ég fer í KR, til að fá smá áskorun.\"
,,Ég geri mitt besta og reyni að komast að. Það er líka fínt að æfa hjá svona sterku liði, maður bætir sig best á að æfa með reyndari og betri leikmönnum.\"
Mist hefur ekki leikið með yngri landsliðum Íslands til þessa en nú á sama tíma og hún gengur í raðir KR fékk hún þau tíðindi að hún hafi verið valin í hóp U19 ára landsliðsins.
,,Það var mjög ánægjulegt að komast að þar, loksins,\" sagði Mist.
Hún lék 17 leiki í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim fjögur mörk auk þess sem hún skoraði eitt mark í tveimur bikarleikjum sem hún spilaði í sumar.
Samtals hefur hún spilað 34 leiki með meistaraflokki Aftureldingar í deild og bikar og skorað í þeim ellefu mörk.