Fotbolti.net
31.10.08 - 13:19
Hafliði Breiðfjörð

Linda Rós Þorláksdóttir í Hauka (Staðfest)

Linda Rós Þorláksdóttir í leik með Keflavík í sumar.

Linda Rós Þorláksdóttir í leik með Keflavík í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Linda Rós Þorláksdóttir er gengin í raðir 1. deildarliðs Hauka en þetta var staðfest á vefsíðu félagsins.
Linda Rós sem er tvítug kemur til Hauka frá Keflavík en þar lék hún síðasta tímabil.

Árið áður lék hún með Val en hún gekk til liðs við Val frá Haukum fyrir tímabilið 2007.

Linda Rós átti fast sæti í vörninni hjá Keflavík í sumar en gengur nú í raðir uppeldisfélags síns, Hauka, þar sem hún hittir fyrir Salih Heimi Porca sem þjálfaði hana í Keflavík í sumar.

Hún hefur leikið 11 leiki með U 19 ára landsliði Íslands. Hún lék alla 18 leiki Keflavíkur í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark en þar var hún á láni frá Val þar sem hún lék fimm leiki í Landsbankadeildinni í fyrra.

Salih Heimir Porca lýsti því yfir í viðtali við Fótbolta.net þegar hann tók við Haukum að hann ætlaði sér stóra hluti með liðið og myndi styrkja það með leikmönnum úr Landsbankadeildinni.

Linda Rós er annar leikmaðurinn sem kemur því fyrr í dag sögðum við frá því að Fjóla Dröfn Friðriksdóttir væri komin frá KR.

Heimild: Vefsíða Hauka

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.