Fotbolti.net
31.10.08 - 16:31
Hafliði Breiðfjörð

Þórhildur Ólafsdóttir lánuð til Crystal Palace (Staðfest)

Þórhildur hampar sigri í 2. flokki kvenna í sumar ásamt Sögu Huld Helgadóttur.

Þórhildur hampar sigri í 2. flokki kvenna í sumar ásamt Sögu Huld Helgadóttur.

Canon

Mynd: Eyjafréttir

Kvennaboltinn
Þórhildur Ólafsdóttir ÍBV er gengin í raðir enska félagsins Crystal Palace á láni til áramóta. Crystal Palce leikur í 1. deildinni á Englandi sem er næst efsta deildin þar í landi. Frá þessu er greint á vefsíðu ÍBV í dag.
Þórhildur mun leika með liðinu fram að jólum en þá snýr hún aftur til Vestmannaeyja. Þórhildur sem er 18 ára gömul lék 12 leiki með ÍBV í 1. deildinni í sumar og skoraði í þeim þrjú mörk auk þess sem hún lék einn leik í bikarnum.

Á vefsíðu ÍBV segir að umgjörð í kringum Crystal Palace liðið er með þeim betri á Englandi.

Þar segir einnig að enska félagið hefur boðið forráðamönnum kvennaknattspyrnunar hjá ÍBV að koma til London til að kynna sér aðstæður þar með samvinnu liðanna í huga.

Þórhildur var í dag valin í U19 ára landsliðshóp kvenna.

Heimild: Vefsíða ÍBV

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.