Fotbolti.net
31.12.09 - 10:49
Magnús Már Einarsson

Haukur Páll Sigurðsson í Val (Staðfest)

Haukur Páll ásamt Gunnlaugi Jónssyni þjálfara í Valsheimilinu í morgun.

Haukur Páll ásamt Gunnlaugi Jónssyni þjálfara í Valsheimilinu í morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur hefur fengið miðjumanninn Hauk Pál Sigurðsson til lið við sig frá Þrótti en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í morgun.
Samningur Hauk Páls við Þrótt rennur út í dag en mörg lið hafa sýnt honum áhuga undanfarnar vikur.

Haukur Páll er uppalinn Þróttari en hann hefur leikið með liðinu nánast alla sína tíð.

Í sumar var Haukur í lykilhlutverki hjá Þrótti en hann skoraði sex mörk í fimmtán leikjum í Pepsi-deildinni.

Í lok ágúst fór hann síðan til norska félagsins Alta á láni þar sem að hann lék út tímabilið.

Haukur Páll er fjórði leikmaðurinn sem Valur fær í vetur en áður höfðu Jón Vilhelm Ákason, Rúnar Már Sigurjónsson og Stefán Jóhann Eggertsson komið til félagsins.

Rætt verður við Hauk Pál og Gunnlaug Jónsson þjálfara Vals í viðtali á Fótbolta.net síðar í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.