Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 31. desember 2021 16:00
Victor Pálsson
Varð betri með því að spila ekki fótbolta
Mynd: EPA
Patrick Bamford, leikmaður Leeds, er betri leikmaður í dag en fyrir tveimur mánuðum er hann meiddist nokkuð illa.

Bamford sneri aftur í lið Leeds í síðasta mánuði gegn Brentford en meiddist svo aftur og hefur verið frá síðan.

Á þessum tíma hefur framherjinn bætt sig sem leikmaður en hann vill sjálfur meina þetta í samtali við Sky Sports.

„Þetta er furðulegt. Stundum þegar þú ert meiddur þá verðuru betri leikmaður með því að spila ekki," sagði Bamford.

„Þetta bætir við pressu. Þegar ég kom inná gegn Brentford þá spilaði ég ekkert sérlega vel. Ég var ryðgaður og ekki í takt við leikinn."

„Það tekur nokkrar vikur að komast af stað en það er mjög skrítið að stundum þá verðuru betri án þess að spila."
Athugasemdir
banner
banner
banner