Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   fim 26. júlí 2012 08:30
Elvar Geir Magnússon
Andreas Alm: Nokkuð vissir um að við munum fara áfram
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
,,Vonandi getum við lært af fyrsta leiknum og staðið uppi sem sigurvegarar eftir 90 mínútur," sagði Andreas Alm þjálfari AIK við Fótbolta.net í gær en liðið mætir FH í Kaplakrika klukkan 19:15 í kvöld í síðari leik liðanna í annarri umferð Evrópudeildarinnar.

Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli og því er ljóst að AIK þarf að ná að minnsta kosti einu marki í kvöld til að fara áfram.

,,Þeir spiluðu vel og voru skipulagðir. Sem betur fer fáum við aftur 90 mínútur til að spila gegn þeim. Við erum sterkir og við erum nokkuð vissir um að við munum fara áfram á endanum."

Bjarki Gunnlaugsson fór á kostum í fyrri leiknum og Gunnleifur Gunnleifsson var einnig öflugur í markinu. Alm nefndi þá sérstaklega til sögunnar í FH liðinu.

,,Þeir hafa reyndan markvörð og númer 13 á miðjunni sem er líka reyndur. Síðan hafa þeir klára leikmenn frammi og fljótan vinstri kantmann. Vinstri bakvörðurinn er líka með góðan vinstri fót. Þeir hafa góða blöndu fyrir Evrópukeppnina en vonandi endar þátttaka þeirra þar á morgun (í dag)."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni en þar tjáir Alm sig meðal annars um ummæli leikmanna AIK eftir fyrri leikinn.
Slapp
banner
banner