Jóhann Berg Guðmundsson skoraði sigurmark Charlton í æfingaleik gegn Southend í dag.
Jóhann Berg skoraði eina mark leiksins á 84. mínútu.
Þetta var fyrsta mark Jóhanns síðan hann gekk í raðir Charlton á dögunum eftir að hafa leikið með AZ Alkmaar undanfarin ár.
Jóhann Berg skoraði eina mark leiksins á 84. mínútu.
Þetta var fyrsta mark Jóhanns síðan hann gekk í raðir Charlton á dögunum eftir að hafa leikið með AZ Alkmaar undanfarin ár.
Jóhann Berg spilaði allan leikinn í dag og var ógnandi á kantinum hjá Charlton.
Charlton leikur í ensku Championship deildinni en Southend er í C-deildinni.
Athugasemdir