Stjarnan náði að leggja ÍBV í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitaleik Fótbolta.net mótsins í kvöld. Stjarnan þurfti sigur og ljóst er að liðið mun mæta Breiðabliki í úrslitum. Dagsetning fyrir þann leik er óráðin.
Stjörnumenn unnu mótið í fyrra en SportTv sýndi leikinn í kvöld beint og nú má sjá mörkin úr honum.
Stjörnumenn unnu mótið í fyrra en SportTv sýndi leikinn í kvöld beint og nú má sjá mörkin úr honum.
Fallegasta mark leiksins skoraði Þórhallur Kári Knútsson, 19 ára leikmaður Stjörnunnar, þegar hann jafnaði 1-1.
Smelltu hér til að skoða skoða mörkin á síðu SportTv
ÍBV 1 - 2 Stjarnan
1-0 Bjarni Gunnarsson
1-1 Þórhallur Kári Knútsson
1-2 Arnar Már Björgvinsson
Athugasemdir