Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 04. september 2015 12:15
Arnar Geir Halldórsson
Man City vildi lána Mangala - Hafnaði Valencia
Mangala í leik með Man City
Mangala í leik með Man City
Mynd: Getty Images
Man City ætlaði að lána Eliaquim Mangala til Valencia en hann hafði ekki áhuga á því og hyggst berjast fyrir sæti sínu í liðinu.

Man City keypti Nicolas Otamendi frá Valencia í sumar og hugðist senda Mangala til Spánar í staðinn.

Mangala átti erfitt uppdráttar á síðustu leiktíð en er staðráðinn í að sanna sig á Etihad.

„Ég hafnaði því að fara að láni til Valencia því það væri skref aftur á bak. Mér finnst ég vera nógu góður til að byrja hjá Manchester City." sagði Mangala í viðtali við Sky fréttastöðina.

Varnarleikur City hefur verið til mikillar fyrirmyndar í upphafi tímabils og hefur liðið enn ekki fengið á sig mark. Mangala hefur leikið við hlið Vincent Kompany í hjarta varnarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner