Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. apríl 2016 07:30
Arnar Geir Halldórsson
Þorgrímur Þráinsson nýr formaður Vals
Þorgrímur Þráinsson
Þorgrímur Þráinsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorgrímur Þráinsson var kjörinn formaður Vals á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær og tekur hann við af Birni Zoega.

Þorgrímur lék knattspyrnu um árabil með Val en hann á einnig 17 landsleiki að baki fyrir íslenska landsliðið.

Hann hefur verið virkur í starfi KSÍ á undanförnum árum og er í starfsliði íslenska karlalandsliðsins í dag.

Þorgrímur er landsþekktur rithöfundur og hugðist gefa kost á sér til forseta Íslands í forsetakosningunum í sumar en dró framboð sitt til baka á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner