Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fim 25. ágúst 2016 12:00
Jóhann Ingi Hafþórsson
Paco Alcacer nálgast Barcelona
Paco Alcacer fagnar með Valencia.
Paco Alcacer fagnar með Valencia.
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur komist að samkomulagi við Paco Alcacer, framherja Valencia um félagsskipti til Katalóníu en Goal.com greinir frá þessu.

Talið er að Valencia sé að bíða eftir að Alcacer biðji sjálfur um að fara frá félaginu áður en gengið verður frá félagsskiptunum.

Barcelona ku vilja auka breiddina hjá sér fram á við en Alcacer yrði fyrst og fremst hugsaður sem varamaður fyrir Luis Suarez, Neymar og Lionel Messi.

Kaupverðið er um 30 milljónir evra en Sergi Samper gæti farið í hina áttina sem partur af kaupverðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner