Arsenal hefur samþykkt að borga 17 milljónir punda fyrir Lucas Perez, framherja Deportivo en Sky Sports greinir frá þessu.
Perez mun fara í læknisskoðun og ræða um persónuleg kjör áður en kaupin verða staðfest en hann ferðaðist ekki með liðinu til Real Betis en Deportivo mætir Betis í kvöld.
Arsene Wenger hefur talað um að hann vilji styrkja framlínuna sína og hefur hann boðið í leikmenn eins og Alexandre Lacazette, framherja Lyon.
Hann er þekktur sem Lucas en hann spilaði með unglingaliðum Atletico Madrid.
Athugasemdir