Viðar Örn Kjartansson hefur byrjað mjög vel í Ísrael og setti hann tvennu í nágrannaslag í dag.
Viðar leikur fyrir topplið Maccabi Tel Aviv sem rúllaði yfir Hapoel Tel Aviv og vann með fimm mörkum gegn engu.
Viðar leikur fyrir topplið Maccabi Tel Aviv sem rúllaði yfir Hapoel Tel Aviv og vann með fimm mörkum gegn engu.
Viðar skoraði fjórða markið eftir glæsilegt einstaklingsframtak þar sem hann prjónaði sig í gegnum þrjá varnarmenn áður en hann kláraði með frábæru skoti með vinstri fyrir utan teig.
Markið er hægt að sjá hér fyrir neðan, en Viðar gerði einnig fimmta og síðasta markið með skalla eftir aukaspyrnu.
Viðar og félagar eiga næst leik við Dundalk í Evrópudeildinni. Liðin mætast á Írlandi næsta fimmtudag, en Viðar skoraði í ótrúlegum leik gegn Zenit í fyrstu umferð.
Athugasemdir