Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 23. febrúar 2017 13:04
Elvar Geir Magnússon
Petit: Handviss um að Griezmann fari til Man Utd
Griezmann á Old Trafford?
Griezmann á Old Trafford?
Mynd: Getty Images
Emmanuel Petit, fyrrum leikmaður franska landsliðsins og Arsenal, segist vera handviss um að sóknarmaðurinn Antoine Griezmann hjá Atletico Madrid muni fara til Manchester United.

„Ég held að hann muni klárlega fara til Manchester United. Hann hefur myndað frábært samband við Paul Pogba í landsliðinu og utan vallar eru þeir líka góðir vinir," segir Petit.

„Hann kemur með mörk og stoðsendingar til United en einnig hugarfar sigurvegara. Hann hefur á síðustu fjórum árum bætt sig á hverju ári. Hann hefur mikinn metnað persónulega og líka fyrir liðið sem hann spilar fyrir. Hann yrði stór biti fyrir Manchester United."

Jose Mourinho vill styrkja sitt lið í sumar og ef Wayne Rooney fer til Kína skapast pláss í sóknarmannahópnum.

United er langt frá því að vera öruggt með Meistaradeildarfótbolta á næsta tímabili en það skiptir miklu máli fyrir félagið varðandi hugsanleg leikmannakaup í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner