Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur var sáttur með leik sinna manna í dag en lið hans gerði 1-1 jafntefli gegn Breiðablik.
„Ég er ánægður með það sem við erum að vinna með. Við erum að vinna mikið í varnarleiknum. Leggjum svolítið mikla áherslu á hann og ég man ekki eftir mörgum færum sem þeir fá í leiknum," sagði Óli.
Grindvíkingar spilaði með fimm manna vörn í dag rétt eins og svo mörg önnur lið og stefna þeir á að spila með fimm manna vörn í sumar.
„Ég er að halda áfram með það sem ég er að gera í fyrra. Breytingin er sú að ég er að nota það varnarlega líka. Ég notaði það sóknarlega í fyrra.
Það var þunnskipaður hópur hjá Grindavík í dag og voru þeir ekki með fullskipaðan hóp. Það er einn Serbi á reynslu hjá Grindavík og er liðið að fara í viðræður við hann.
„Við erum svolítið blankir á hópinn. Hann er ekkert ofboðslega stór hjá okkur. En við erum með þéttan hóp. Við erum með einn Serba sem lítur mjög vel út og við erum að fara í viðræður við hann," sagði Óli
Ef viðtalið virkar ekki að ofan má sjá það hér að neðan:
Athugasemdir