Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. febrúar 2017 21:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalía: Juventus með þægilegan sigur
Alex Sandro fagnar marki sínu í kvöld.
Alex Sandro fagnar marki sínu í kvöld.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir voru á dagskrá í Ítölsku deildinni í kvöld. Napoli mætti Atalanta og Juventus og Empoli áttust við.

Juventus liðið komst í forystu í upphafi síðari hálfleiks þegar að boltinn fór af Lukasz Skorupski leikmanni Empoli og í markið. Bakvörðurinn Alex Sandro kláraði leikinn svo fyrir Juventus. Ítölsku meistararnir í góðum málum á toppnum í Serie A, tíu stiga forysta.

Napoli fékk Atalanta í heimsókn þar höfðu gestirnir betur með tveimur mörkum frá Mattia Caldara. Napoli er í þriðja sæti en Atalanta fjórða.

Napoli 0 - 2 Atalanta
0-1 Mattia Caldara ('28 )
0-2 Mattia Caldara ('70 )
Rautt spjald:Franck Kessie, Atalanta ('67)

Juventus 2 - 0 Empoli
1-0 Lukasz Skorupski, sjálfsmark ('52 )
2-0 Alex Sandro ('65 )

Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner