Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 28. júlí 2017 10:34
Magnús Már Einarsson
Varamannabekkirnir eru bjórdósir
Svona eru bekkirnir!
Svona eru bekkirnir!
Mynd: Twitter
Viktoria Plzen í Tékklandi hefur kynnt nýstárlega útgáfu af varamannabekkjum. Varamannabekkir félagsins eru nú eins og bjórdósir í laginu.

Bjóriðnaðurinn er stór í Plzen og bjór fyrirtækið Gambrinus hefur nú látið útbúa þessi varamannaskýli.

Það tók fjórar vikur að útbúa varamannaskýlin en leikmenn og starfsmenn fá að sitja þar í leðursætum.

Íslenska landsliðið spilaði á vellinum í Plzen árið 2014 en Tékkar unnu þar 2-1 sigur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner