Heimild: umfn.is
Skosku leikmennirnir Kenneth Hogg og Neil Slooves verða báðir áfram með Njarðvík á næsta ári en þeir skrifuðu undir samning þess efnis áður en þeir héldu heim.
Þeir komu báðir til Njarðvíkur frá Tindastóli í félagsskiptaglugganum um mitt sumar.
Njarðvíkingar unnu 2. deildina í sumar eftir að hafa verið spáð 4. sætinu og leika þeir því í Inkasso-deildinni á næsta ári.
Kenneth Hogg lék 8 leiki með Njarðvík og gerði fjögur mörk en áður hafði hann leikið 15 leiki í deild og bikar með Tindastóli og gert 9 mörk. Hann lék einnig sumarið 2016 með Tindastól þar sem hann gerði 14 mörk í 17 leikjum.
Neil Slooves lék 8 leiki með Njarðvík í vörninni en áður hafði hann leikið 11 leiki og gert 1 mark með Tindastól í sumar.
Sjá einnig:
Þjálfari Njarðvíkur: Markmið allra að ná stöðugleika í nýrri deild
Athugasemdir