Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 15. desember 2017 23:30
Ingólfur Stefánsson
Hreinn Ingi framlengir við Þrótt
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Hreinn Ingi Örnólfsson hefur skrifað undir eins árs framlenginu á samningi sínum við Þrótt Reykjavík. Samningur Hreins gildir nú út árið 2019.

Hreinn er 24 ára gamall miðvörður. Hann var í lykilhlutverki hjá Þrótturum síðasta sumar og var valinn besti leikmaður liðsins á lokahófi í haust.

Hreinn gekk til liðs við Þrótt árið 2008 frá Víkingum og hefur spilað 88 leiki fyrir félagið. Í þessum leikjum hefur hann skorað 4 mörk.

Í tilkynningu frá Þrótti segir: „Það er gleðiefni að Hreinn hafi framlengt samning sinn við félagið og sýnt Þrótti þar með traust sem við reynum vissulega að standa undir."
Athugasemdir
banner