Cardiff City 1 - 0 Hull City
1-0 Sol Bamba ('58 )
1-0 Sol Bamba ('58 )
Cardiff ætlar ekki að hleypa Wolves alltof langt fram úr sér í toppbaráttunni í Championship-deildinni.
Cardiff lagði Hull í dag á heimavelli sínum. Eina markið gerði varnarmaðurinn Sol Bamba á 58. mínútu.
Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Cardiff í dag vegna meiðsla. Ekki er vitað nákvæmlega hversu lengi landsliðsfyrirliðinn verður frá, það fer eftir því hvort hann fari í aðgerð eða ekki. Ef hann fer í aðgerð verður hann fjarverandi í mánuð.
Cardiff er í öðru sæti, fjórum stigum á eftir toppliði Wolves. Hull er í 19. sæti deildarinnar með 22 stig.
Athugasemdir