Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 26. maí 2018 15:08
Elvar Geir Magnússon
Birkir byrjar á bekknum
Birkir Bjarnason hefur spilað 25 leiki með Villa í Championship á þessari leiktíð.
Birkir Bjarnason hefur spilað 25 leiki með Villa í Championship á þessari leiktíð.
Mynd: Getty Images
Klukkan 16:00 verður flautað til leiks Aston Villa og Fulham, úrslitaleiksins í Championship.

Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason byrjar á varamannabekk Aston Villa en sigurliðið í leik dagsins mun fylgja Wolves og Cardiff upp í ensku úrvalsdeildina.

Steve Bruce, stjóri Villa, getur sett met með því að koma liði upp úr Championship-deildinni í fimmta sinn.

Fulham endaði í þriðja sæti í deildarkeppninni og var tveimur stigum frá því að komast beint upp.

Verðmæti leiksins í dag er metið á um 280 milljónir punda svo búast má við hörðum slag. Fylgst verður með gangi mála í úrslitaþjónustu á forsíðu.


Athugasemdir
banner
banner
banner