Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. júlí 2016 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sky 
Hazard spenntur fyrir komu Zlatan í enska boltann
Mynd: Getty Images
Belgíski framherjinn Eden Hazard sem leikur með Chelsea segir að hann sé spenntur fyrir komu Zlatan Ibrahimovic í ensku úrvalsdeildina og segir að deildin verði enn betri við það.

Zlatan staðfesti í gær að hann ætli að leika með Man Utd á næstu leiktíð og Hazard sem sjálfur var leikmaður ársins árið 2015 er spenntur fyrir því að fá svona stjörnu í deildina.

„Enska úrvalsdeildin mun enn einu sinni fá aðra heimsklassa stjörnu og ég get ekki beðið eftir að úrvalsdeildin byrji aftur," sagði Hazard sem er á Evrópumótinu í Frakklandi með Belgiu.

„Það verður erfitt að vinna úrvalsdeildina á þessari leiktíð með öllum þessum sterku andstæðingum og þetta mun gera úrvalsdeildina enn sterkari."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner