Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 01. ágúst 2015 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: BBC 
Enner Valencia líklega alvarlega meiddur
Enner Valencia
Enner Valencia
Mynd: Getty Images
Ekvadorinn, Enner Valencia, varð fyrir slæmum meiðslum í hægra hné og ökla þegar að West Ham gerði jafntefli gegn Astra í Evrópudeildinni.

Þessi 25 ára gamli leikmaður lenti í slæmri tæklingu rétt eftir að hafa komið West Ham yfir í leiknum.

"Ég hef miklar áhyggjur af Enner," sagði Slaven Bilic, stjóri West Ham.

"Það er hins vegar of snemmt að segja til um hversu langan bata og endurhæfingu hann mun þurfa."

Valencia mun hitta sérfræðing í næstu viku, sem mun úrskurða hversu lengi þessi meiðsli munu hrjá hann.
Athugasemdir
banner
banner