Southampton hefur tilkynnt um komu Belgans Toby Alderweireld frá Spánarmeisturum Atletico Madrid.
Alderweireld kemur til Southampton á lánssamningi út leiktíðina og kemur hann til með að fylla skarð Króatans Dejan Lovren sem seldur var til Liverpool í sumar.
Þessi 25 ára gamli landsliðsmaður Belgíu kom til Atletico fyrir ári síðan frá Ajax. Hann spilaði þó einungis 12 deildarleiki á síðustu leiktíð, auk þess sem hann kom við sögu í 4 leikjum í Meistaradeild Evrópu.
Athugasemdir