Sky Sports greinir frá því að Joleon Lescott sé á leið til Aston Villa fyrir um 2 milljónir punda.
Lescott var mikilvægur West Brom í fallbaráttunni á síðasta tímabili en er fallinn niður goggunarröðina eftir komu James Chester frá Hull og Jonny Evans frá Man Utd.
Lescott var mikilvægur West Brom í fallbaráttunni á síðasta tímabili en er fallinn niður goggunarröðina eftir komu James Chester frá Hull og Jonny Evans frá Man Utd.
Lescott er mættur til Birmingham og fer í læknisskoðun hjá Villa seinna í dag.
Lescott er 33 ára gamall og á 26 landsleiki fyrir England að baki. Lescott var keyptur til Manchester City á 22 milljónir punda fyrir sex árum og fór svo frítt til West Brom í fyrra.
Athugasemdir