Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 02. september 2014 12:20
Magnús Már Einarsson
Alfreð fær hrós frá Van Nistelrooy
Mynd: Twitter
Alfreð Finnbogason var í gærkvöldi verðlaunaður fyrir að vera markahæsti leikmaðurinn í hollensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Alfreð skoraði 29 mörk með Heerenveen en í sumar gekk hann í raðir Real Sociedad á Spáni.

Markamaskínan Ruus van Nistelrooy afhenti verðlaunin í gærkvöldi.

,,Vel gert @A_Finnbogason að vera markakóngur í Hollandi á síðasta tímabili með 29 mörk. Gangi þér vel," sagði Nistelrooy á Twitter í dag um leið og hann birti meðfylgjandi mynd.
Athugasemdir
banner
banner