Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 03. september 2015 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Buffon: Balotelli verður að taka ákvörðun
Mynd: Getty Images
Gianluigi Buffon segir að Mario Balotelli sé kominn að ákveðum kaflaskiptum í lífinu og þurfi að ákveða eigin framtíð.

Balotelli er þekktur fyrir að vera til vandræða hvert sem hann fer en hefur einnig sýnt magnaða tilburði bæði með félagsliðum og ítalska landsliðinu.

„Þetta er alltaf sama sagan með Mario," sagði landsliðsfyrirliðinn við Rai Sport.

„Við vitum hvers hann er megnugur, við vitum hvað hann hefur gert í fortíðinni og hvað hann getur gert í framtíðinni.

„Balotelli er 25 ára og á þessum aldri hafa allir náð nægum þroska til að ákveða eigin framtíð. Hann verður að taka ákvörðun og þá munu hlutirnir byrja að ganga betur fyrir Mario, Milan og landsliðið."

Athugasemdir
banner
banner