QPR hefur fengið vinstri bakvörðinn Paul Konchesky til sín frá Leicester City á lánssamning út tímabilið.
Konchesky er orðinn 34 ára gamall en hefur á ferlinum spilað með liðum á borð við Liverpool, Tottenham og West Ham.
Konchesky er orðinn 34 ára gamall en hefur á ferlinum spilað með liðum á borð við Liverpool, Tottenham og West Ham.
Konchesky á 138 deildarleiki að baki fyrir Leicester síðustu fjögur ár en hefur í heildina spilað yfir 400 leiki í ensku úrvalsdeildinni.
QPR spilar í Championship deildinni í ár eftir að hafa lokið keppni í botnsæti úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir