Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. mars 2015 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Chelsea að kaupa 17 ára Rúmena
Cristian Manea í leik með unglingalandsliði Rúmena.
Cristian Manea í leik með unglingalandsliði Rúmena.
Mynd: Getty Images
Chelsea hefur náð samkomulagi við rúmenska félagið Viitorul Constanta um kaup á bakverðinum Cristian Manea.

Talið er að enska félagið muni greiða 2,3 milljónir punda fyrir þennan 17 ára gamla leikmann, en sem hefur þegar spilað sinn fyrsta landsleik fyrir Rúmena.

Chelsea hefur fylgst náði með Manea í vetur og eftir að Ajax og Udinese sýndu leikmanninum áhuga ákvaðu forráðamenn enska félagsins ða ganga hratt í málið.

Búist er að Manea muni spila undir fimm ára samning hjá þeim bláklæddu og að hann verði lánaður til annaðhvort Vitesse eða Real Mallorca á næstu leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner