ÍR 1 - 2 Afturelding
1-0 Arnór Björnsson
1-1 Gunnar Wigelund
1-2 Birkir Guðmundsson
1-0 Arnór Björnsson
1-1 Gunnar Wigelund
1-2 Birkir Guðmundsson
Afturelding lagði ÍR að velli með tveimur mörkum gegn einu í B-deild Lengjubikarsins í kvöld en leikið var í Egilshöll.
Arnór Björnsson kom ÍR-ingum yfir í leiknum áður en Gunnar Wigelund jafnaði metin fyrir Aftureldingu.
Birkir Guðmundsson skoraði svo sigurmarkið hjá Aftureldingu en þetta var fyrsti leikur beggja liða í mótinu.
Afturelding er því með þrjú stig eftir einn leik í riðli 1 en ÍR er án stiga.
Athugasemdir