Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 06. maí 2016 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Mynd: Wes Morgan framan á Captain Morgan flöskum
Mynd: Getty Images
Áfengisframleiðandinn Captain Morgan hefur búið til sérstaka flösku tileinkaða Wes Morgan, fyrirliða og miðverði Leicester City.

Wes Morgan hefur átt magnað tímabil með Leicester sem urðu óvænt Englandsmeistarar og hefur því augljóslega verið kallaður Captain Morgan ansi oft á tímabilinu.

Flaskan með Wes Morgan framan á er seld í takmörkuðu magni og er myndin framan á flöskunni ansi kostuleg.

Þar er Morgan klæddur upp eins og sjóræningjaskipstjóri og með bolta undir öðrum fætinum. Myndina er hægt að sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir
banner